Áætluð heimkoma
Áætluð heimkoma eftir frábæra Smiðjudaga hér í Borgarnesi er kl 16.00 í Hraunbæ 123.
Áætluð heimkoma eftir frábæra Smiðjudaga hér í Borgarnesi er kl 16.00 í Hraunbæ 123.
Smiðjudagar hefjast á föstudaginn og hafa tæplega 150 manns skráð sig til leiks og má því búast við miklu fjöri í Borgarnesi um helgina. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu mánuði og er það von Miðjuhópsins að allir muni hafa gaman af mótinu.
Mæting er í Skátamiðstöðina, Hraunbæ 123 kl. 19 á föstudeginum. Þetta á við þá þátttakendur sem fara með rútunni. Fyrir þá sem ætla að mæta beint í grunnskólann þá bendum við á að skólinn opnar ekki fyrr en rúturnar mæta en gert er ráð fyrir að það sé kl. 21.00.
Þátttökugjald er kr. 4.500 og innifalið í því gjaldi eru mótsbolur, nafnspjald, ofið mótsmerki, fullt fæði og öll dagskrá. Rútuferðin kostar kr. 2.000 fram og til baka.
Þeir sem kjósa að gera upp á staðnum verða að hafa með sér reiðufé.
Hægt er að millifæra inná reikning Miðjuhópsins, kt. 601109-1900 – reikningsnr. 0324-13-943 og hvetjum við alla til þess að notfæra sér þann kost.
Senda þarf kvittun á greidsla@smidjudagar.com og setja nafn barnsins sem skýringu.
Þátttaka er afar góð en nú eru tæplega 150 skátar skráðir frá 17 skátafélögum og ljóst er að mikill áhugi er fyrir Smiðjudögum innan skátahreyfingarinnar.
Þátttakendur munu gista í grunnskóla Borgarness en bæjaryfirvöld hafa verið svo vinsamleg að leggja grunnskólann til sem höfuðstöðvar Smiðjudaga að þessu sinni. Þar munum við einnig hafa aðgang að tölvum sem munu nýtast þátttakendum við þátttöku í JOTA og JOTI.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Smiðjudaga www.smidjudagar.com en eftirtalin símanúmer
verða opinber Smiðjudaganúmer núna um helgina:
Smári, mótsstjóri Smiðjudaga: 846 4578
Andri Týr, formaður Miðjuhópsins: 860 1923
Einnig svörum við yfirleitt mjög fljótt tölvupósti á netfanginu smidjudagar@smidjudagar.com
Nú er búið að loka fyrir skráningu á Smiðjudaga. Rétt tæplega 150 skátar eru skráðir á mótið og var sent út bréf á alla fyrr í kvöld.
Fyrir þá sem ekki fengu bréfið er hægt að nálgast það hér: Smiðjudagar 2011 í Borgarnesi.
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á Smiðjudaga í Borgarnesi. Tæplega 120 krakkar úr 17 skátafélögum eru skráðir til leiks þegar þetta er skrifað. Við lokum fyrir skráningu í rútuna kl 15 í dag, miðvikudag, þannig að það er mjög mikilvægt að skrá sig fyrir þann tíma ef viðkomandi ætlar með rútunni. Skráningu á mótið lýkur hinsvegar á miðnætti í kvöld. Endilega hvetjið alla til þess að skrá sig – þetta verður hörkugaman.
Mæting er í Skátamiðstöðina, Hraunbæ 123 á föstudaginn kl 19.00 fyrir þá sem ætla með rútu. Fyrir þá sem koma beint í Borgarnes þá opnar skólinn ekki fyrr en rútan kemur en áætlað er að það verði kl 21.
Skráning á Smiðjudaga er nú hafin hér á vefsíðu Smiðjudaga undir liðnum “Skráning”
Mótsgjald er 4.500 krónur og innifalið í því er gisting, öll dagskrá, allur matur, miðnætursund, mótsbolur, nafnspjald, JOTA/JOTI merki og stanslaust stuð.
Einnig er boðið uppá rútuferðir fram og til baka fyrir einungis 2000 krónur á mann.
Smiðjudagar 2011 verða haldnir helgina 14.-16. október í Borgarnesi. Nánari upplýsingar koma á næstu dögum. Allir skátar 14 ára (fædd 1997 eða fyrr) og eldri eru velkomnir á Smiðjudaga!
Helgina 27.-29. maí verður hið árlega Rs. Þjófstart haldið á Úlfljótsvatni.
Þetta er fyrir rekkaskáta (16-18 ára) en við bjóðum dróttskátum sem eru 15 ára með til að þjófstarta þeirra rekkaskátastarfi. Þetta er alvöru útilega með alvöru dagskrá.
Fyrir þetta frábæra mót þarf aðeins að greiða 5.000 kr. og er allt innifalið í því, ferðir fram og til baka, matur allan tíman, dagskrá, tjaldsvæði og ómæld ánægja.
Dagskráin er ekki hefðbundin fyrir Úlfljótsvatn, við erum búnir að leggja mikið á okkur við að þróa dagskránna og gera hana meira krefjandi en gengur og gerist. Í turninum verður farið út fyrir kassann og prófaðar hinar ýmsu aðferðir við að komast upp og niður. Einnig verður vatnadagskráin ekki af verri kantinum, póstaleikur á vatninu, burtreiðar og margt fleira.
Við lofum stanslausu fjöri og skemmtilegri dagskrá. Þátttökugjald er 5000 krónur og innifalið í því er rúta, tjaldgisting, matur og öll dagskrá.
Skráning er hafin á Skátavefnum.
Smiðjudagar voru haldnir á Grundarfirði um síðustu helgi. Á mótið komu 139 skátar frá 19 skátafélögum ásamt frábæru teymi aðstoðarfólks. Mótið hófst á kvöldsundi í sundlaug Grundarfjarðar og venju samkvæmt var mótsstjóranum hent í laugina í fötunum. Að þessu sinni var mótsstjórinn þó öllu viðbúinn og mætti til leiks í þurrbúning svo hann myndi nú ekki blotna. Strax eftir sundið voru minni smiðjurnar opnaðar og byrjuðu skátarnir að tala við aðra skáta í gegnum samskiptaforritið mIRC á JOTI og einnig voru í boði spil og þrautir fyrir aðra.
Fyrir hádegi á laugardeginum var farið í skoðunarferð um bæinn á meðan smiðjur dagsins voru gerðar klárar. Þegar komið var til baka í skólann fengu allir smiðjudagabol og nafnspjald. Eftir það hófust allar smiðjur á mótinu. Aðalsmiðjan í ár var Cajon trommusmíði en þar fengu skátarnir að smíða eina trommu fyrir sitt skátafélag. Bebba, Linda og Sigrún úr Gyðjuhópnum sáu um brjóstsykursgerð sem sló í gegn í fyrra og Tobba úr Iðjuhópnum sá um muffinsbakstur. Einnig gátu krakkarnir tekið þátt í JOTA og kubbað lego í gegnum talstöðvar, útbúið dollumerki, búið sér til ís, poppað yfir eldi, búið til Þórshamar úr tini og margt fleira. Þá heimsóttu okkur um 20 dreka- og fálkaskátar úr skátafélaginu Örninn og fengu að prófa nokkra dagskrárliði. Um kvöldið var svo haldið í samkomuhúsið þar sem haldin var kvöldvaka sem endaði með miklum dansi á diskóteki. Rekkaskátar fóru eftir það í næturleik sem var gerður fyrir þá.
Á sunnudeginum var keyrður nýr leikur á Smiðjudögum en hann ber nafnið S-leikurinn (Samfélagsleikurinn) og gekk hann útá það að leysa ýmis verkefni og safna sér inn stigum. Eftir hádegi var svo ráðist á það að þrífa skólann hátt og lágt og gekk það þokkalega vel og gátum við lagt af stað í bæinn á áætluðum tíma.
Miðjuhópurinn þakkar öllum sem mættu og tóku þátt eða aðstoðuðu eitthvað við mótið kærlega fyrir og vonast til að sjá sem flesta að ári.
Eins og á öllum svona viðburðum þá eru að sjálfsögðu einhverjir óskilamunir sem bíða eftir eiganda sínum. Við erum búnir að skrifa niður það sem varð eftir og hægt er að nálgast óskilamuni í Skátmiðstöðinni, Hraunbæ 123
Continue reading 'Vel heppnuðum Smiðjudögum lokið – um 180 manns þegar mest var!'»

Smiðjudagar voru settir fyrr í kvöld og eru alls 136 þátttakendur á mótinu. Ýmsar smiðjur eins og JOTI, spilasmiðja, gestaþrautir og singstar voru opnaðar á miðnætti. Undirbúningur fyrir smiðjur morgundagsins eru búnar að vera í fullum gangi í nótt og meðal stærri smiðja á morgun eru Cajon smíði, brjóstsykursgerð, muffinsbakstur og fleira. Hér má sjá afrakstur af Cajon undirbúningi.
Hægt verður að fylgjast með mótinu bæði hér á heimasíðunni og á Facebook-síðu Miðjuhópsins – www.facebook.com/midjuhopurinn
Smiðjudagar hefjast á föstudaginn og hafa tæplega 150 manns skráð sig til leiks og má því búast við miklu fjöri á Grundarfirði um helgina. Undirbúningur hefurstaðið yfir síðustu mánuði og er það von Miðjuhópsins að allir munu hafa gaman af mótinu.
Mæting er í Skátamiðstöðina, Hraunbæ 123 kl 18:30 á föstudeginum. Þetta á við þá þátttakendur sem fara með rútunni. Þátttakendur á einkabílum eru hvattir til að leggja af stað á sama tíma og munum við öll hittast í grunnskólanum á Grundarfirði.
Þátttökugjald er kr. 4.500 og innifalið í því gjaldi eru mótsbolur, ofið mótsmerki, fullt fæði og öll
dagskrá.
Rútuferðin kostar kr. 3.000 fram og til baka og verður að greiða rútuna við brottför með reiðufé.
Þeir sem kjósa að gera upp á staðnum verða að hafa með sér reiðufé.
Hægt er að greiða bæði rútu- og þátttökugjald með því að millifæra inná reikning Miðjuhópsins, kt. 601109-1900 – reikningsnr. 0324-13-943
Þátttaka er afar góð en nú eru tæplega 150 skátar skráðir frá 19 skátafélögum og ljóst er að mikill áhugi er fyrir Smiðjudögum innan skátahreyfingarinnar.
Þátttakendur munu gista í grunnskóla Grundarfjarðar en bæjaryfirvöld hafa verið svo vinsamleg að leggja grunnskólann til sem höfuðstöðvar Smiðjudaga að þessu sinni. Þar munum við einnig hafa aðgang að tölvum sem munu nýtast þátttakendum við þátttöku í JOTA og JOTI
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Smiðjudaga www.smidjudagar.com en eftirtalin símanúmer
verða opinber Smiðjudaganúmer núna um helgina:
Guðmundur: 894 4749 Andri Týr: 860 1923
Panorama Theme by
Themocracy