Category: Uncategorized

Rúmlega 40 skátar á Rs. Þjófstarti

By Smári Guðnason, May 31, 2010 3:15 pm

Rekkaskátamótið Þjófstart var haldið nú um helgina á Úlfljótsvatni. Mótið var fyrir rekkaskáta og elstu dróttskátana og tóku 41 skáti þátt í ár. Það var Miðjuhópurinn sem sá um mótið fyrir BÍS og að sögn Smára Guðnasonar, kynningarstjóra hópsins, tókst mótið frábærlega í alla staði. Dagskrá mótsins var ekki af verri kantinum því meðal þess sem krökkunum stóð til boða var klifur, sig, flyfox, bátadagskrá, brúarstökk og fleira.

Continue reading 'Rúmlega 40 skátar á Rs. Þjófstarti'»

Skráningin er hafin á Rs. Þjófstart

By Jakob Guðnason, May 4, 2010 2:48 pm

Hvar ætlar þú að vera 28. til 30. maí?
Við ætlum að bjóða þér í leiðangur!

Miðjuhópurinn í samstarfi við Bandalag íslenskra skáta heldur Rs. Þjófstart helgina 28. til 30. maí á Úlfljótsvatni. Rs. Þjófstart er fyrsta skátamót sumarsins fyrir rekkaskáta og elstu dróttskaátana (fædd 1994) og verður dagskráin ekki af verri endanum.

  • Hver hefur ekki viljað gera eitthvað meira í turninum á Úlfljótsvatni en bara síga og klifra?
  • Hver vill fá að prufa allar gerðir af bátum sem Úlfljótsvatn hefur uppá að bjóða?
  • Hverjum finnst ekki notanlegt að sitja í góðum hópi fyrir framan varðeld og hafa það kósý?

Á Rs. Þjófstarti gefst þér tækifæri á að prufa allt þetta og margt margt fleira. Áherslan er lögð á sumarskátastarf og allt sem því fylgir.

Þátttökugjald er 5.000 ISK
Innifalið í verði er: rúta, matur, tjöld til að gistaí, einkenni, öll dagskrá og skemmtun

Skráning  er hafin á: http://www.smidjudagar.com/?page_id=14

Athugið: Viðburðurinn er fyrir alla rekkaskáta og einnig elstu dróttskátana (fædd 1994)

Rs. Þjófstart

By Smári Guðnason, April 29, 2010 10:33 am

Miðjuhópurinn stendur fyrir rekkskátamótinu Þjófstart annað árið í röð á Úlfljótsvatni.

Markmið helgarinnar er fyrst og fremst að hafa ýkt ógeðslega gaman með öðrum rekkaskátum og Miðjuhópnum!

Dagskráin er stútfull af krefjandi og jafnframt skemmtilegum dagskrárliðum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta rekkaskáta á mótinu og hefja þannig glæsileg skátasumar!

Kynningarmyndband fyrir mótið er hægt að sjá hér.

Vel heppnuð forkeppni Euro-mini-jam

By Smári Guðnason, February 22, 2010 1:34 pm

Forkeppni Euro-mini-jam var haldin í Skemmtigarðinum og skátaheimili Hamars síðastliðinn laugardag. Alls tóku 23 skátar þátt í fjórum flokkum þátt. Mosverjar sendu tvo flokka, Ægisbúar sendu einn flokk og í fjórða flokknum voru 2 Hraunbúar, 3 Kópar og 2 Svanir.

Dagurinn byrjaði í Hamarsheimilinu kl 10 á því að farið var í létta upphitunarleiki til að koma þátttakendum í keppnisgírinn og svo var flokkunum gert að útbúa flokkseinkenni. Eftir hádegi var svo haldið af stað gangandi yfir í Skemmtigarð þar sem keppt var í þrautabraut, eggjakasti og fleiru. Að því loknu var farið aftur til baka í Hamarsheimilið þar sem keppt var í fjórum greinum til viðbótar, þ.e. klifurkeppni, einhjólakeppni, súrringakeppni og danskeppni. Nokkrar smákeppnir voru í gangi allan daginn og má þar nefna jaðarstraujun, smjaður, „smartness in scouting“, liðsandi og fleira.

Að lokinni danskeppni og kvöldvöku voru tveir flokkar kynntir sem sigurvegarar dagsins og munu þeir fara fyrir Íslands hönd á Euro-mini-jam sem fram fer á Úlfljótsvatni í sumar. Þeir flokkar eru „Extreme barbapabbar“ úr Mosverjum og „Við förum á rúntinn“ úr Hraunbúum, Kópum og Svönum.

Skráning hafin á forkeppni EMJ

By Smári Guðnason, January 27, 2010 3:05 pm

Skráningin á Forkeppni Euro-Mini-Jam er hafin hér á smidjudagar.com.

Smelltu hér til að skrá þig!

Forkeppni Euro-Mini-Jam

comments Comments Off
By Smári Guðnason, January 7, 2010 5:55 pm

Miðjuhópurinn stendur fyrir forkeppni Euro-Mini-Jam (Smáþjóðaleika skáta) helgina 20.-21. febrúar næstkomandi. Viðburðurinn er fyrir alla dróttskáta og munu þeir sem standa sig best taka þátt sem fulltrúar Íslands á Euro-Mini-Jam sem haldið verður á Úlfljótsvatni í sumar. Nánari upplýsingar um viðburðinn koma á næstu dögum og verður viðburðurinn einnig kynntur á dróttskátafundum á höfuðborgarsvæðinu.

Upplýsingar um Euro-mini-Jam má finna á www.eurominijam.com

Óskilamunir komnir í skátamiðstöðina

comments Comments Off
By Jakob Guðnason, October 25, 2009 11:58 pm

Óskilamunir frá smiðjudögum eru komnir upp í skátamiðstöðina í Hraunbæ 123. Meðal óskilamuna er eftirfarandi:

Diðrikson jakki

Diðrikson úlpa

W vindjakki

Regatta gönguskór, nr. 43

Svört dúnúlpa kvennmanns

Philips sléttujárn

Lúffur brúnar

Sundbuxur(bláar) og handklæði(grænt)

Rugby bolur, svartur

Grá lea peysa

Walky talky

Skátabolur, polo

Ertu að elta mig bolur, skrifað á díana og sigríður

Inniskór, bláir adidas nr. 37

Svartur trefill

Flip flops, svartir

Adidas inniskór nr. 6

Mataráhöld

Nike Air sundpoki

Flís lúffur, svartar

Old navy blár bolur

Gulur matarbolli

Yankees húfa

Bikini, svart

Bláir vetlingar, svampur sveinsson

Græn tjalddína

Northface úlpa, svört, XL

Gönguskór, svartir leður,nr.  40

Fartölvutaska

Vel heppnuðum Smiðjudögum lokið

comments Comments Off
By Smári Guðnason, October 22, 2009 11:46 am

Skátamótið Smiðjudagar fór fram í 15. skipti í Garði síðastliðna helgi en mótið er haldið samhliða alþjóðlega skátamótinu JOTA/JOTI. Alls tóku um 130 skátar úr 15 skátafélögum þátt á mótinu.

Mótið hófst á föstudaginn með miðnætursundi að norskum tíma í sundlauginni í Garði og að sjálfsögðu var reynt við pottametið. Það fer þannig fram að eins mörgum og hægt er er smalað í heitan pott og svo talið hversu margir komust í hann.
Í ár komust 69 manns í pottinn sem er af venjulegri stærð. Að loknu sundi var svo haldið aftur yfir í Gerðaskóla þar sem hægt var að komast í tölvur til að spjalla á IRCinu og svo var boðið uppá ýmsa aðra afþreyingu.

Á laugardeginum hófst dagskrá um tíuleytið á því að þátttakendur fóru yfir í Garðskaga. Þar var sigið úr 23 metra hæð í Garðskagavita, farið í sandkastalagerð og byggðasafnið var skoðað. Eftir hádegi opnuðu svo smiðjurnar í skólanum. Nú í ár var boðið uppá sex mismunandi smiðjur en þær voru brjóstsykursgerð, hnútagerð, þórshamarsgerð, legó, JOTA og svo að lokum JOTI. Um kvöldið var svo haldin kvöldvaka í skólanum sem endaði í fjörugu diskóteki í félagsmiðstöðinni.

Miðjuhópurinn vill koma á framfæri þakklæti til bæjaryfirvalda í Garði fyrir velvild og veitta aðstoð.

Smiðjudagar hefjast á föstudaginn

comments Comments Off
By Smári Guðnason, October 14, 2009 9:22 pm

Smiðjudagar hefjast á föstudaginn og hafa yfir 100 manns skráð sig til leiks og má því búast við miklu fjöri í Garði um helgina. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu mánuði og er það von Miðjuhópsins að allir munu hafa gaman af mótinu. Mótið hefst kl 21:00 og þurfa allir að vera búnir að gera upp mótsgjald þá.
Dagskránni lýkur svo á sunnudeginum kl. 15:00 og verður rútan komin í bæinn ekki seinna en 16:00.

Varðandi brottför
Brottför verður stundvíslega kl. 19:00 frá Jötunheimum, skátaheimili Vífils í Garðabæ.  Þetta á við þá þátttakendur sem fara með rútunni.  Þátttakendur á einkabílum eru hvattir til að leggja af stað á sama tíma og munum við öll hittast í grunnskólanum Gerðaskóla, Garðbraut 90 í Garði.

Varðandi kostnað og greiðslu
Þátttökugjald er kr. 4.500 og innifalið í því gjaldi er gisting 2 nætur, miðnætursund, mótsbolur, ofið mótsmerki, allur matur á laugardegi og sunnudegi fyrir utan kaffi og öll dagskrá.
Rútuferðin kostar kr. 1.000 fram og til baka og verður að greiða rútuna við brottför með reiðufé.
Mótsgjald verður að greiða á staðnum með reiðufé og þurfa allar greiðslur að berast á föstudaginn!

Gisting
Þátttakendur munu gista í Gerðaskóla en bæjaryfirvöld hafa verið svo vinsamleg að leggja grunnskólann til sem höfuðstöðvar Smiðjudaga að þessu sinni.  Þar munum við einnig hafa aðgang að tölvum sem munu nýtast þátttakendum við þátttöku í JOTA og JOTI

Nánari upplýsingar og símanúmer
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Smiðjudaga www.smidjudagar.com en eftirtalin símanúmer verða opinber Smiðjudaganúmer núna um helgina:
Jakob:  823 5147  Andri Týr: 860 1923

Við hlökkum til að sjá þig um helgina!

Styttist óðfluga í Smiðjudaga

comments Comments Off
By Smári Guðnason, October 2, 2009 3:25 pm
Smiðjudagaplakatið 2009

Smiðjudagaplakatið 2009

Nú styttist í Smiðjudaga og því mjög mikilvægt að fara skrá sig sem allra fyrst.

Við erum komnir með tilboð í rútuna og það hljóðar uppá 1000kr. báðar leiðir fyrir þá sem skrá sig í rútuna – ATH. skráningin í rútuna er bindandi og því ekki hægt að hætta við að fara með rútunni.

Rútan fer frá Jötunheimum, skátaheimili Vífils í Garðabæ kl 19:00.

Panorama Theme by Themocracy