Smiðjudagar hefjast á föstudaginn
Smiðjudagar hefjast á föstudaginn og hafa yfir 100 manns skráð sig til leiks og má því búast við miklu fjöri í Garði um helgina. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu mánuði og er það von Miðjuhópsins að allir munu hafa gaman af mótinu. Mótið hefst kl 21:00 og þurfa allir að vera búnir að gera upp mótsgjald þá.
Dagskránni lýkur svo á sunnudeginum kl. 15:00 og verður rútan komin í bæinn ekki seinna en 16:00.
Varðandi brottför
Brottför verður stundvíslega kl. 19:00 frá Jötunheimum, skátaheimili Vífils í Garðabæ. Þetta á við þá þátttakendur sem fara með rútunni. Þátttakendur á einkabílum eru hvattir til að leggja af stað á sama tíma og munum við öll hittast í grunnskólanum Gerðaskóla, Garðbraut 90 í Garði.
Varðandi kostnað og greiðslu
Þátttökugjald er kr. 4.500 og innifalið í því gjaldi er gisting 2 nætur, miðnætursund, mótsbolur, ofið mótsmerki, allur matur á laugardegi og sunnudegi fyrir utan kaffi og öll dagskrá.
Rútuferðin kostar kr. 1.000 fram og til baka og verður að greiða rútuna við brottför með reiðufé.
Mótsgjald verður að greiða á staðnum með reiðufé og þurfa allar greiðslur að berast á föstudaginn!
Gisting
Þátttakendur munu gista í Gerðaskóla en bæjaryfirvöld hafa verið svo vinsamleg að leggja grunnskólann til sem höfuðstöðvar Smiðjudaga að þessu sinni. Þar munum við einnig hafa aðgang að tölvum sem munu nýtast þátttakendum við þátttöku í JOTA og JOTI
Nánari upplýsingar og símanúmer
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Smiðjudaga www.smidjudagar.com en eftirtalin símanúmer verða opinber Smiðjudaganúmer núna um helgina:
Jakob: 823 5147 Andri Týr: 860 1923
Við hlökkum til að sjá þig um helgina!