Vel heppnuðum Smiðjudögum lokið
Skátamótið Smiðjudagar fór fram í 15. skipti í Garði síðastliðna helgi en mótið er haldið samhliða alþjóðlega skátamótinu JOTA/JOTI. Alls tóku um 130 skátar úr 15 skátafélögum þátt á mótinu.
Mótið hófst á föstudaginn með miðnætursundi að norskum tíma í sundlauginni í Garði og að sjálfsögðu var reynt við pottametið. Það fer þannig fram að eins mörgum og hægt er er smalað í heitan pott og svo talið hversu margir komust í hann.
Í ár komust 69 manns í pottinn sem er af venjulegri stærð. Að loknu sundi var svo haldið aftur yfir í Gerðaskóla þar sem hægt var að komast í tölvur til að spjalla á IRCinu og svo var boðið uppá ýmsa aðra afþreyingu.

Á laugardeginum hófst dagskrá um tíuleytið á því að þátttakendur fóru yfir í Garðskaga. Þar var sigið úr 23 metra hæð í Garðskagavita, farið í sandkastalagerð og byggðasafnið var skoðað. Eftir hádegi opnuðu svo smiðjurnar í skólanum. Nú í ár var boðið uppá sex mismunandi smiðjur en þær voru brjóstsykursgerð, hnútagerð, þórshamarsgerð, legó, JOTA og svo að lokum JOTI. Um kvöldið var svo haldin kvöldvaka í skólanum sem endaði í fjörugu diskóteki í félagsmiðstöðinni.
Miðjuhópurinn vill koma á framfæri þakklæti til bæjaryfirvalda í Garði fyrir velvild og veitta aðstoð.