Vel heppnuð forkeppni Euro-mini-jam

By Smári Guðnason, February 22, 2010 1:34 pm

Forkeppni Euro-mini-jam var haldin í Skemmtigarðinum og skátaheimili Hamars síðastliðinn laugardag. Alls tóku 23 skátar þátt í fjórum flokkum þátt. Mosverjar sendu tvo flokka, Ægisbúar sendu einn flokk og í fjórða flokknum voru 2 Hraunbúar, 3 Kópar og 2 Svanir.

Dagurinn byrjaði í Hamarsheimilinu kl 10 á því að farið var í létta upphitunarleiki til að koma þátttakendum í keppnisgírinn og svo var flokkunum gert að útbúa flokkseinkenni. Eftir hádegi var svo haldið af stað gangandi yfir í Skemmtigarð þar sem keppt var í þrautabraut, eggjakasti og fleiru. Að því loknu var farið aftur til baka í Hamarsheimilið þar sem keppt var í fjórum greinum til viðbótar, þ.e. klifurkeppni, einhjólakeppni, súrringakeppni og danskeppni. Nokkrar smákeppnir voru í gangi allan daginn og má þar nefna jaðarstraujun, smjaður, „smartness in scouting“, liðsandi og fleira.

Að lokinni danskeppni og kvöldvöku voru tveir flokkar kynntir sem sigurvegarar dagsins og munu þeir fara fyrir Íslands hönd á Euro-mini-jam sem fram fer á Úlfljótsvatni í sumar. Þeir flokkar eru „Extreme barbapabbar“ úr Mosverjum og „Við förum á rúntinn“ úr Hraunbúum, Kópum og Svönum.

Leave a Reply

Panorama Theme by Themocracy