Rúmlega 40 skátar á Rs. Þjófstarti

By Smári Guðnason, May 31, 2010 3:15 pm

Rekkaskátamótið Þjófstart var haldið nú um helgina á Úlfljótsvatni. Mótið var fyrir rekkaskáta og elstu dróttskátana og tóku 41 skáti þátt í ár. Það var Miðjuhópurinn sem sá um mótið fyrir BÍS og að sögn Smára Guðnasonar, kynningarstjóra hópsins, tókst mótið frábærlega í alla staði. Dagskrá mótsins var ekki af verri kantinum því meðal þess sem krökkunum stóð til boða var klifur, sig, flyfox, bátadagskrá, brúarstökk og fleira.

Mótið hófst með rútuferð frá Hraunbænum á föstudeginum og þegar komið var austur á Úlfljótsvatn fengu krakkarnir úthlutað fjórum topptjöldum og þeim tjaldað fyrir aftan Hrafna- og Fálkaskála. Eftir það var svo stutt og laggóð kvöldvaka.

Fyrir hádegi á laugardeginum voru leyst samfélagsverkefni fyrir útilífsmiðstöðina en þau voru þrenn, gróðursetning á sumarblómum og uppsetning á annarsvegar köldum og hinsvegar heitum potti fyrir aftan KSÚ þar sem verið er að smíða saunu. Í hádeginu fengum við til okkar útieldunarmeistarann Guðmund Finnbogason og kenndi hann krökkunum að elda dýrindis karríkjúkling yfir eldi. Að því loknu hófst svo aðaldagskrá mótsins þ.e. turninn og bátar. Í turninum fengu krakkarnir að klifra, síga, fara í FlyFox og júmma sig upp í miðjum turninum. Sett var upp keppni í hver gæti verið fljótastur að gera þetta allt fernt og gekk allt eins og í sögu. Í bátadagskránni var búið að setja út flöskur með morgunkorni í og áttu krakkarnir að finna flöskurnar og veiða þær uppúr vatninu og klára morgunkornið áður en komið væri í land aftur. Einnig voru báta burtreiðar og ýmislegt fleira.

Um kvöldið var haldin önnur kvöldvaka og strax að henni lokinni hófst leitin að fjársjóðinum hans Vidda úr Toy Story en þar kepptust 2 hópar um það að leysa ýmsar þrautir til að fá hluti til að setja saman lykilinn að fjársjóðskistunni hans Vidda. Eftir það var tiltölulega rólegt og krakkarnir voru lengi við varðeldinn að hafa það kósý.

Sunnudagurinn fór svo í brúarstökk við Steingrímsstöð og umræður um rekkaskátastarf. Mótinu lauk svo í bílalúgunni á Olís í Norðlingaholti þar sem allir fengu lítinn ís í brauðformi.

Miðjuhópurinn þakkar fyrir frábæra helgi og vonandi verður svona gaman á öllum skátamótunum í sumar.

Leave a Reply

Panorama Theme by Themocracy