Upplýsingar
Um Smiðjudaga
JOTA (Jamboree On The Air) og JOTI (Jamboree On The Internet) er árlegur viðburður þar sem u.þ.b. 500.000 skátar hvaðanæva að úr heiminum eiga samskipti sín á milli með aðstoð fjarskiptatækja og yfir Internetið. Á þessu skátamóti skiptist ungt fólk á reynslusögum, deilir með sér hugmyndum og eflir bræðralag og þekkingu á mismunandi menningu hvers annars. Á Íslandi hefur þetta mót verið nefnt Smiðjudagar og er viðamikil dagskrá í boði hverju sinni sem miðar að því að gefa þátttakendum kost á að glíma við fjölbreytt verkefni samhliða þátttöku í JOTA og JOTI. Tækifærið er einnig notað til að gefa almenningi færi á að kynnast skátastarfi af eigin raun með beinni þátttöku.
Hvað: Smiðjudagar 2009
Hvar: Sveitarfélagi Garður
Hvenær: Helgina 16. – 18. október 2009
Hverjir: Fyrir alla skáta 14 ára og eldri. (Fæddir 1995 og fyrr)
Verð: 4500 kr. (rúta ekki innifalin)
Innifalið í verði er: gisting 2 nætur, miðnætursund, mótsmerki, mótseinkenni, mótsbolur, allur matur á laugardegi og sunnudegi fyrir utan kaffi og óendanleg skemmtun!
Rúta: 1000 krónur báðar leiðir. Rútan fer frá Jötunheimum, skátaheimili Vífils í Garðabæ.